|
|
07.04.2008 01:43:04 / oktovia
Jæja það er orðið mjög langt síðan ég skrifaði síðast.  Ég er nú orðin amma síðan þá   Guðrún Ósk og Sævar Þór eru búinn að eignast litla sæta prinsessu, hún er 13 merkur og 51 cm og með svart hár.  Fæðingin gekk bara vel svona með fyrsta barn og stóðu þau sig bara vel bæði en Guðrún þó sínu betur enda var það hún sem fæddi stúlkuna.   Ég var viðstödd og er voðalega stolt amma.   Guð blessi litlu prinsessuna og foreldra hennar. Bestu kveðjur amma, afi, Tómas og Jóna Margrét
»
27.12.2007 21:23:55 / oktovia
»
23.05.2007 22:14:16 / oktovia
»
02.04.2007 13:42:27 / oktovia
»
11.02.2007 15:54:24 / oktovia
»
11.10.2006 19:17:35 / oktovia
»
30.09.2006 21:22:16 / oktovia
Jæja ég er mætt aftur. Nú er víst kominn vetur en ekki er svo kalt
enn. Heyrið á ekki sjónvarpið afmæli í dag. Ég man þegar það var að
koma, því þá var ekkert sjónvarp heima hjá okkur og við krakkarnir
stóðum fyrir utan búðaglugga og horfðum á sjónvarp þar sem var
verið að auglýsa það til sölu.  En þarna stóðum við og horfðum á
þetta undur sem þá var að koma og sem seinna átti eftir að
tröllríða öllum heiminum og enn betur. 
Betur að þetta hefði aldrey komið.  Jæja hvað með það búið og
gert. Mér líst vel á að nú er byrjað að æfa körfubolta aftur hér í
Garðinum og vonandi koma svo frjálsar íþróttir líka seinna eða í
sumar.  Krakkar verið dugleg við að kíkja á æfingar. Heyrið annars
eru ekki allir hressir og kátir.   Bæ bæ kveðja
Hrönn 
»
05.08.2006 00:11:39 / oktovia
Jæja búinn að opna aftur fyrir netið og þá er best að reyna að
skrifa eitthvað. Verslunarmannahelgin að ganga í gaðrð og auðvita
rigning um allt land eða þannig. 
Erum að fara að gera eitthvað skemmtilegt?  Annars búið að vera
nóg að gera, það er vinna og vinna haha. Hef lítið að segja í þetta
sinn, skrifa vonandi meyra seinna. 
Verið bless á meðann.  Bæ bæ.
»
25.06.2006 22:04:58 / oktovia
Jæja þá er að láta verða af að skrifa eithvað hér í þessa dagbók.
Við vorum á ættarmóti frá afa mínum Jóel Eyjólfssyni nú um síðurtu
helgi. þ.e. 16 til 18 júní að Efri-Vík við Kirkjubæjarklaustur.
Þetta mót heppnaðist bara ágætlega og var fjöldi manns nálægt 60,
eða bara þokkalegur fjöldi og var þarna stuð, söngur, glens og
leikir.  Svo var Sigurbjörg teindadóttir mín að útskrifast úr
íþróttakennaraskólanum nú á laugardaginn 24 júní og okkur boðið í
veislu og lónið og einnig fluttu þau í íbúðina sín að Fífumóa.
 Tómas var að keppa á Borganesmóti og gekk bara vel, kom heim
með bikar og reyndar komu nokkrir bikarar því öllum flokkum gekk
vel, svo þið sjáið að nó er búið að vera að gerast frá því að ég
skrifaði hér síðast.   Einnig var hér veisla í Kríulandi því
Bragi og Búmenn voru að afhenda síðustu íbúðirnar í þessum áfanga
eða um 36 íbúðir og var öllum íbúum boðið til veislunnar ásamt
verktökum.  Jæja
þetta læt ég næja í bilu lifið heil.
»
25.05.2006 20:33:10 / oktovia
Jæja kanski fari að hlína aftur á klakanum.  Nú er Vorhátíð
skólans búinn og stittist í skólaslitinn.  Útskrift 10 bekkjar er
alltaf spennandi og svo mun einnig vera nú, því verður gaman að sjá
hvernig krakkarnir hafa staðið sig.  Ég óska þeim öllum góðs
gengis í framtíðinnu.   Gaman var að sjá leikmenn Víðis í nýju
búningunum og vinna KV 3-1. Félagið á 70 ára afmæli á þessu ári og
yrði það frábært ef það kæmist upp um deild.  Það er hægt með
góðum stuðningi allra íbúa Garðs, svo ég hvet ykkur Garðbúa til að
mæta á völlin og styðja ykkar menn til sigurs.   Látið
endilega sjá ykkur, ekki húka heima í felum.  Senn líður að
kosningu, sem verður nú á laugardaginn 27. maí. Munið setjið X við
réttan staf.  Hver verður hann?  Jæja gott fólk, þetta er
gott í bili. 
Hverjir skildu vinna:?klikk:
»
06.05.2006 13:27:39 / oktovia
Jæja hvað segir fólkið. Langt síðan ég hef bloggað, svo nú er að
bæta úr því. Endajaxlinn er loks að verða góður.  Allt komið
á fullt í sambandi við kostningar, en ég ætla ekki að skipta mér af
þeim slag inná við. En kanski maður segi sína skoðun annað
slagið.  Eins og t. d. finnst mér kominn tími til að fara að
laga til í kring um Víðishúsið , s.s að malbika bílaplanið þó ekki
væri nema hluta þess. Sveitarfélagið á og rekur þetta svæði allt í
kring um Knattspyrnuvöllinn og er hann eitt af andlitum
byggðalagsins út á við.  Það er þegar fólk frá öðrum
bæjarfélögum koma á leiki hjá Knattspyrnufélaginu Víði hvort sem er
hjá M.flokk eða yngri flokkum þess.  Giðingin utan um völlin, er
alveg hörmung að horfa á,  og er þessi sjón sem blasir við þeim
ekki fögur.  Havð ætla menn að gera á næstu fjórum árum, láta
þetta enn halda áfram að grottna niður?  Hver stjórnar
skólanum?
Eru það ekki þeir sem sitja í skolanefndinni. Skólanefndarmenn
lítið ykkur nær. 
Jæja best að hætta að sinni og sjá hvort eithvert hafarí verður út
af þessum skrifum, en ég vona að svo verði ekki. Í
Sveitastjórnarkostningum ættu menn og konur að fá að kjósa menn en
ekki flokka, það er mín
skoðun.   Bless
verið öll hress. 
»
03.04.2006 20:45:23 / oktovia
Jæja best að setja nokkrar línur á blað. Var að vinna um helgina og
nóg að gera. Lögreglan var með sitt árlega fótboltamót og gekk bara
vel, utna nokkra pústra hér og þar. Ekkert alvarlegt, en svaka
stuð.  Uff. Gamla fór til tannlæknis,, sem væri ekki í frásögu
færandi, nema það var tekinn endajax, æ  svaka sárt.  það
tók um þrjú korter að ná jaxlinum og þurfti svona átta til tíu
deifi stungur, hrikalega sárt.   Mín ætlar sko aldrey
aftur að láta taka tönn,  það er á hreynu.  Jæja hættu
þessu væli.
Mín ætlar að gera eitthvað skemmtilegt um helgina og njóta þess að
verð til.  
Flott Árshátíðin hjá krökkunum og svo tókst matarboðið hjá 10.
bekk rosa vel. 
Gaman hvað við eigum frábæra og fallega unglinga.   Jæja best að
láta þetta nægja í dag, en bless ekkert stress og verið
hress. 
»
18.03.2006 17:58:45 / oktovia
 Jæja ætli sé ekki best að láta loks frá sér heyra bee.. 
Heðan er nú allt gott að frétta, úti er þoka en hér inni er bara
gott veður. hehe.
Ég fór með Stínu og Sigurjón í bæinn á fimmtudaginn, en gamla
settið var að kíkja á innréttingar í þvottarhúsið, bara að
skoða..  Fórum á Stælin áður en farið var heim og fengum okkur
steik og svo auðvita á skallan á eftir í ísinn, hahaaa alltaf góður
ísinn   Þetta var nú bara góð ferð. 
Jæja Eddi bara kominn upp á klakann og strax farinn að dæma hjá
Víði. 
En meistara fl. karla á að spila við Kára af Skaganum kl. 18:00
hehe veit ekki hvort þetta sé djók eða bara vindurinn
Vona að við getum farið upp í sumarbústað um Páskana til að slappa
af. Það yrði alveg frábært.   . Ég held svei mér þá að það
sé bara komið vor úti og ætla að vona að veðrið haldist svona gott
áfram næstu daga.   Jæja ætli ég láti þetta ekki vera gott í
bili. Hafið það öll gott þarna úti.   Bless,
bæbæ.
»
23.02.2006 21:14:28 / oktovia
Jæja, maður er svon rétt að jafna sig eftir frábært
Kútmagakvöld.  Skemmti mér mjög vel og maturinn var alveg
frábær..ég fekk nú líka vinning  ,en sumir fengu fleyrri en aðrir,
nefni engin nöfn.  Herra " HerraGarður" og frú tóku sig
vel út á gólfinu.   Þetta með draugaganginn var svalt, alltaf
stuð og fjör yfir lögum KÓNGSINS.  Árni Jonsen
góóóður.........   hehe. Jæja annars fékk ég mér göngutúr í
góða veðrinu í dag, svona til að hressa upp á sálartetrið, haha.
Annars,læt þetta nægja í bili, verið hress og ekkert
stress   . Bæbæ
»
16.02.2006 22:48:31 / oktovia
»
Síður: 1 2
|
|